Lakkað flot hentar vel þar sem lágmarks meðhöndlun gólfa er æskileg, t.d. skrifstofur, verslanir, sýningarsalir og heimili.
Eiginleikar:
Lakkað flot gefur gólfinu einstakt útlit og eru engin gólf eins. Útlit getur ráðist af hvernig flotið er lagt, hitastigi og raka.
Undirlagið skal vera hreint og laust við alla fitu. Ef um ílögn er að ræða þarf að tryggja að hún hafi nægan innri styrk til að ætlaður árangur náist. Frekari hreinsun fer fram með demantslípun.
Viðgerðir ber að framkvæma áður með viðgerðarefnum.