» Samskeytalaust
» Þolir gufuhreinsun
» Engar sprungur
» Frábært efnaþol
» Auðvelt að þrífa og sótthreinsa
» Þarfnast lítils viðhalds
» Nánast lyktarlaust við lögn
Notkunarmöguleikar:
Maxi Crete PU gólfefni er ætlað fyrir svæði þar sem álag er mikið, s.s. í fiskmóttökum, mjólkuriðnaði, ölgerð, matvælavinnslu og víðar þar sem efna- og hitaálag er mikið.
Maxi Crete PU er þriggja þátta polyurethene efni með sement sem þriðja þáttinn. Maxi Crete RT er hægt að leggja sem einlögn, þá með meðal hálkuvörn, eða tvílagt en þá er kvartssandi eða áloxíð (Dynagrip) stráð í blauta lögnina og topp efni skafið yfir daginn eftir.
Maxi Crete RT er lagt í 3mm, 6mm og 9mm þykktum og fer hitaþol eftir þykkt efnisins (sjá tæknilýsingablað)
Til athugunar:
Undirlag: Undirlag verður að vera steinsteypt eða flotað, með að minnstakosti 25 N/mm2 þrýstiþol. Undirlagið verður að hreinsa með stálkúlublæstri eða demantsslípun til þess að fjarlægja allt það sem hindrað getur viðloðun. Flöturinn skal vera hreinn og með opið yfirborð.
Viðgerðir og afrétting: Viðgerðir og leiðrétting á vatnshalla skal framkvæma með Maxi Crete RT eða epoxy steypu til þess að tryggja jafna lögn. Steypuskil og stærri sprungur þarf að styrkja með járnamottu eða með því að bolta stálplötu yfir steypuskilin. Varðandi frekari frágang steypuskila, sprungna og viðgerða skal hafa samband við Gólflagnir.
Lagning Maxi Crete PU er einungis unnið af sérhæfðum verktökum sem kunna með efnið að fara og hafa yfir að ráða réttum tækjakosti. Gólflagnir er sérhæft fyrirtæki á þessu sviði og hefur víðtæka reynslu sem tryggir góðan árangur.